– verður haldið á Grand hótel föstudaginn 25. janúar 2019
Í ár ætlar Önfirðingafélagið að slást í för með okkur og mæta á Sólarkaffið þannig að þetta verður enn skemmtilegra enda Önfirðingar annálað gleðifólk!
Fulltrúar frá árgangi 1959 ætla að hefja sextugasta aldursárið sitt með trompi og troða upp á Sólarkaffinu.
Veislustjóri: Hjördís Hjartardóttir
Ræðumaður kvöldsins: Halldór Jónsson
Glæsilegur matseðill að venju
Birgir Olgeirsson – Bolvíkingur og Ísfirðingur, mun stjórna fjöldasöng
Happdrætti að hætti hússins – glæsilegir vinningar
Dansiball með hljómsveitinni „Húsið á sléttunni“ undir öruggri stjórn Halldórs Smárasonar
Miðasala er hafin, smelltu hér til að kaupa miða, við bjóðum við þeim sem eru ekki nettengdir að hringja inn og kaupa miða.