Sólarkaffi 2026
Vel heppnað Sólarkaffi 2026!
Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2026 var haldið laugardaginn 31. janúar í Gamla Bíó. Hinar ómissandi pönnukökur voru auðvitað á boðstólum og dagskráin var ekki af verri endanum.
Veislustjóri kvöldsins var Bolli Már Bjarnason.
Ræðumaður kvöldsin var Gunnar Tryggvason. Gunnar er Krókspúki og fór hreinlega á kostum í ræðu sinni með sögum að vestan.
Hjörleif Valsson, fiðlusnilling þarf vart að kynna fyrir Ísfirðingum, en hann kom og sýndi og sannaði af hverju hann er kallaður fiðlusnillingur.
Fjöllistahópurinn „Sólarkossar“ sem samanstendur af hópi ungs fólks sem á ættir að rekja til Ísafjarðar, Núps, og Ketilseyrar, sungu snilldarlega nokkur falleg dægurlög með sólartengingu.
Það var svo hin stórskemmtilega og frábæra hljómsveit „The Bookstore Band“ sem rak endahnútinn á gott Sólarkaffi og hélt uppi stuðinu fram á nótt.
Signý Björk Rósantsdóttir hlaut heiðursverðlaun stjórnar Ísfirðingafélagsins fyrir einstaka tryggð við Sólarkaffið í gegnum árin. Það var Dýrfinna Torfadóttir sem hannaði og gaf verðlaunagripinn. Bestu þakkir til þeirra beggja fyrir tryggð og velvild vð Sólarkaffið og Ísfirðingafélagið.
Við færum öllum þeim sem komu að Sólarkaffinu á einn eða annan hátt bestu þakkir. Sérstaklega þó auðvitað þeim frábæru gestum sem mættu og skemmtu sér með okkur.
Stjórn Ísfirðingafélagsins.
Jónas Tómasson sjötugur
Ísfirska tónskáldið Jónas Tómasson verður sjötugur á þessu ári (nánar tiltekið 21.nóvember) og verður þess minnst með flutningi verka hans á ýmsan hátt. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar heldur upp á afmælið með veglegum hætti á sumartónleikum safnsins þriðjudagskvöldið...
Afmælishátíð Ísafjarðar 12 – 17 júlí 2016
Dagana 12 - 17 júlí heldur Ísafjarðarbær veglega upp á 150 ára afmæli bæjarins og hvetur Ísfirðingafélagið félagsmenn sína að fjölmenna í bæinn fallega og taka þátt af heilum hug - dagskrá hátíðarinnar finnur þú með því að smella hér
Hin árlega messa Ísfirðingafélagsins 2016
Hin árlega messa Ísfirðingafélagsins verður haldin í Neskirkju sunnudaginn 22. maí n.k. klukkan 11:00. Sr. Magnús Erlingsson sóknarprestur í Ísafjarðarkirkju ásamt sr. Skúla Sigurði Ólafssyni sóknarpresti í Neskirkju sjá um messuna. Boðið verði upp á súpu og brauð...

Stjórn Ísfirðingafélagsins þakkar eftirtöldum, sem lögðu til vinninga í glæsilegt happdrætti á Sólarkaffi félagsins
26. janúar 2018, kærlega fyrir velvild í garð félagsins
Tjöruhúsið í Neðstakaupstað , Kaffihúsið, Húsið á Ísafirði , Messinn Granda, Vesturferðir, Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta eftir Jón Yngva Jóhannsson bókmenntafræðing., Gamla bakaríið Ísafirði, Knattspyrnusaga Ísafjarðar, skráð af Sigurði Péturssyni
Samsung – Ormsson ehf, Wurth á Íslandi, Íslandsbankinn á Ísafirði, Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður, Sara Vilbergsdóttir listamaður
Grand Hótel Reykjavík, Hótel Ísafjörður, Sóltún gisting Ísafirði, Air Iceland Connect
Sólarkaffi 2017
Stjórn félagsins 2025:
Formaður: Rúnar Örn Rafnsson – runarrafns@gmail.com
s. 771-5600
Aðrir stjórnarmenn:
Stefanía Ólöf Reynisdóttir – gjaldkeri
Agnes Ósk Marzellíusardóttir
Kristín Ósk Sigurjónsdóttir
Jóhanna Stefánsdóttir
Varamenn stjórnar:
Sunna Karen Einarsdóttir
Sigurða Sigurðardóttir
Sigurður G. Sigurðsson
Vefstjóri:
Sigurður G. Sigurðsson – siggi@kaliber.is
Ísfirðingafélagið / Breiðuvík 16, 112 Reykjavík / Kennitala: 5301891129