
Aðalfundur Ísfirðingafélagsins 2023

Vestanpósturinn 2023 kominn út!
Þakklæti

Rúnar Örn, formaður Ísfirðingafélagsins
Þakkir fær starfsfólk og kokkar Gamla Bíós fyrir frábæra þjónustu, viðmót og ákaflega góðan mat.
Þakkir fá Jóhanna og Maggý sem bökuðu fyrir veislugesti þessar gómsætu pönnukökur sem við fengum í eftirrétt.
Þakkir fá allir þeir fjölmörgu aðilar, og fyrirtæki, sem af miklum rausnarskap gáfu Ísfirðingafélaginu vinninga í happdrætti kvöldsins.
Þakkir fær hin einstaka Dýrfinna Torfadóttir sem gaf félaginu viðurkenningagripinn sem heiðursgestir kvöldsins fengu afhentan. Eintaklega fallegur gripur og er þetta einungis eitt af fjöldamörgum skiptum sem perlan hún Dídí hefur gefið félaginu vinnu sína og fallega gripi í gegnum árin.
Þakkir fá Guðmundur Friðrik Jóhannsson, fráfarandi formaður, og kona hans Dagný Rósa Pétursdóttir, sem veittu okkur í stjórninni þann heiður að vera heiðursgestir Sólarkaffisins í ár. Enn fremur fá þau bæði aftur og enn einstakar þakkir fyrir fórnfúst starf sitt í þágu félagsins til fjölda margra ára.
Þakkir fá perlurnar Eva og Margrét, sem voru starfsmenn Ísfirðingafélagsins þetta kvöld. Þær gengu bókstaflega í öll störf og gerðu það frábærlega. Þær seldu meðal annars gestum happdrættismiða og stóðu svo vaktina við dyrnar þegar ballið byrjaði og seldu þar aðgöngumiða. Takk takk stelpur.
Þakkir fá vaskir veislustjórar kvöldsins, Kristján Freyr og Bragi Valdimar, sem sáu um að allt gengi vel í veislunni, fóru með gamanmál og brustu meira að segja í söng í hita leiksins. Flottir Hnífsdælingar!
Þakkir fá þessar tvær frábæru vinkonur og söngkonur sem stigu á svið í gær og sungu við mikinn fögnuð fyrir gesti Gamla Bíós. Svava Rún og Kristbjörg Ásta. Þess má geta að afrek þeirra er stærra en margir halda, því þær stigu inn örstuttu áður en Sólarkaffið hófst vegna forfalla og stóðu sig óaðfinnanlega!
Þakkir fær öðlingurinn hann Dúi (Steinþór Friðriksson) sem hélt ekkert minna en frábæra ræðu fyrir gesti Sólarkaffis í ár og sagði einstaklega skemmtilegar púka og bíósögur. Ekki skemmdi fyrir að eftir ræðuna sýndi hann gestum litla stuttmynd sem hann gerði, með hjálp Gróu sinnar, sérstaklega fyrir gesti Gamla Bíós þetta kvöld.
Hjartans þakkir fær stjarna kvöldsins ,að öðrum ólöstuðum. Snillingurinn Halldór Smárason var hreinlega allt í öllu, spilaði þægilega tónlist fyrir matargesti, sá um undirleik með flestum skemmtiatriðum kvöldsins og steig svo á svið með hljómsveitinni sinni og kláraði ballið með glæsibrag.
Þakkir fær hljómsveitin frábæra: Húsið á sléttunni. Hún er löngu orðin húshljómsveit Ísfirðingafélagsins, enda hafa þessir strákar leikið fyrir dansi á Sólarkaffi mörg síðustu ár. Áðurnefndur Halldór Smárason, Birgir og Valdimar Olgeirssynir og Kristinn Gauti – þið eruð bestir!
Þakkir fá stjórnarmeðlimir Ísfirðingafélagsins sem lagt hafa mikla vinnu á sig undanfarnar vikur og mánuði við skipulagningu þessa kvölds. Agnes Ósk, Baldur Þorleifur, Kristín Ósk, Stefanía Ólöf, Sigurða, Sigurður G. og Sunna Karen. Það eru hrein forréttindi að fá að vinna með ykkur!
Og síðast en ekki síst fá Sólarkaffigestir kvöldsins, 220 talsins, sem fylltu Gamla Bíó, og gerðu þetta kvöld ógleymanlegt hjartans þakkir. Takk fyrir að njóta kvöldsins með okkur og skemmta ykkur svo fallega. Sömuleiðis þeir gestir sem ekki komust í matinn en mættu á ballið og tjúttuðu með okkur fram á nótt.
Allir aðrir sem ekki hafa verið taldir upp hér að ofan fá sömuleiðis bestu þakkir fyrir veitta aðstoð. Án ykkar allra væri ekkert Sólarkaffi!
með sólarkveðju
>Rúnar Örn, formaður Ísfirðingafélagsins
Jólakveðja

Air Iceland Connect býður gestum Sólarkaffisins að venju sérkjör á flugi frá Ísafirði.
Afsláttar kóðinn er kominn inn. SOLARKAFFI
Ferðatímabil er 23.01.2020 – 27.01.2020. bókunartímabilið strax til 21.01.2020
20% afsláttur á léttum og klassískum fargjöldum.

Grand Hótel býður gistingu í tengslum við Sólarkaffið
Tilboð á Grand Hótel, einstaklingsherbergi á 19.900 og tveggja manna á 21.900 með morgunverði.
Vestanpósturinn 2017 kominn út
Vestanpósturinn er kominn út. Blaðið í ár er helgað afmælishátíð Ísafjarðarbæjar sl. sumar og gerir hátíðinni góð skil. Fjöldi skemmtilegra og áhugaverðra greina er í blaðinu. Heimir Már Pétursson rifjar upp minningar um bæinn sem hefur allt sem prýða má eina borg og...
Frábært Sólarkaffi 2017
Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2017 heppnaðist einstaklega vel og gestir skemmtu sér mjög vel. Muggi hafnarstjóri Ísafjarðarhafna var ræðumaður kvöldsins og fór hreinlega á kostum sem Bolvíkingur og Ísfirðingur svo gestir veltust um af hlátri. Mugison, sonur Mugga...
NETSALA AÐGÖNGUMIÐA Á SÓLARKAFFIÐ – UPPSELT
UPPSELT ER Á SÓLARKAFFI 2017! ÞEIR SEM KOMA BARA Á BALLIÐ EFTIR SKEMMTUNINA KAUPA MIÐA VIÐ INNGANGINN HLÖKKUM TIL AÐ HITTA YKKUR ÖLL Í SÓLSKINSSKAPI SKEMMTUM OKKUR SAMAN STJÓRN ÍSFIRÐINGAFÉLAGSINS Ef spurningar vakna er hægt að hringja í síma 7715600. Sólarkaffi...
Kókoslengjur og bakkelsi úr Gamla fást nú í Reykjavík!
Fréttin um að nú sé hægt að versla kókoslengjur, kringlur og margt fleira góðgæti frá Gamla Bakaríinu á Ísafirði í versluninni Rangà í Skipasundi hefur flogið um netheima síðustu daga. Við hjá Ísfirðingafélaginu getum staðfest að fréttin er sönn og að fjöldi...
Forsala miða á Sólarkaffi 2017
Er í dag! Laugardaginn 14. janúar. Allir að tryggja sér miða Forsala miða á Sólarkaffi 2017 verður á Grand hótel frá klukkan 14 til 16 laugardaginn 14. janúar. Eftir það verður opnað fyrir miðasölu á netinu á vefsíðu félagsins - isfirdingar.is . Hittumst á Grand...
Sólarkaffi 27. janúar 2017
Staður: Grand Hótel Reykjavík, kl. 19:00 Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2017 verður sérlega glæsilegt, glæsileg dagskrá og glæsilegur matseðill: „Vestfirskt lambalæri með tveimur sósum pipar og bernaise - tilheyrandi meðlæti, og að sjálfsögðu einkenni Sólarkaffisins,...
Stjórn Ísfirðingafélagsins þakkar eftirtöldum, sem lögðu til vinninga í glæsilegt happdrætti á Sólarkaffi félagsins
26. janúar 2018, kærlega fyrir velvild í garð félagsins
Tjöruhúsið í Neðstakaupstað , Kaffihúsið, Húsið á Ísafirði , Messinn Granda, Vesturferðir, Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta eftir Jón Yngva Jóhannsson bókmenntafræðing., Gamla bakaríið Ísafirði, Knattspyrnusaga Ísafjarðar, skráð af Sigurði Péturssyni
Samsung – Ormsson ehf, Wurth á Íslandi, Íslandsbankinn á Ísafirði, Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður, Sara Vilbergsdóttir listamaður
Grand Hótel Reykjavík, Hótel Ísafjörður, Sóltún gisting Ísafirði, Air Iceland Connect
Sólarkaffi 2017
Stjórn félagsins 2022:
Formaður: Rúnar Örn Rafnsson – runarrafns@simnet.is
s. 771-5600
Aðrir stjórnarmenn:
Stefanía Ólöf Reynisdóttir – gjaldkeri
Agnes Ósk Marzellíusardóttir
Kristín Ósk Sigurjónsdóttir
Sunna Karen Einarsdóttir
Sigurða Sigurðardóttir
Sigurður G. Sigurðsson
Vefstjóri:
Sigurður G. Sigurðsson – siggi@kaliber.is
Ritstjóri Vestanpóstsins:
Sigríður Inga Sigurðardóttir – siggainga@gmail.com
Ísfirðingafélagið / Breiðuvík 16, 112 Reykjavík / Kennitala: 5301891129