Staður: Grand Hótel Reykjavík, kl. 19:00
Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2017 verður sérlega glæsilegt, glæsileg dagskrá og glæsilegur matseðill:
„Vestfirskt lambalæri með tveimur sósum pipar og bernaise – tilheyrandi meðlæti, og að sjálfsögðu einkenni Sólarkaffisins, Kaffi og rjómapönnukaka í eftirrétt “
„Happy hour frá 17-19 og flott tilboð á barnum“
Veislustjóri: Dagný Björk danskennari dóttir Péturs Valdimarssonar og Stefaníu (Nínu) Guðmundsóttur.
Ræðumaður: Guðmundur M. Kristjánsson, Muggi hafnarstjóri Ísafjarðarhafna.
Skemmtun: Hinn frábæri tónlistarmaður, Mugison spilar og syngur nokkur af sínum frábæru lögum.
Happdrættið á sínum stað.
Danshljómsveit: Húsið á sléttunni, með Halldór Smárason og þá Olgeirs bræður úr Bolungarvík í framlínunni leikur fyrir dansi. Þeir félagar eru margrómaðir fyrir skemmtilega og hæfileikaríka spilamennsku.
Miðaverð: Matur, skemmtun, ball, kr. 9.900.-
Ball, kr. 2.900.-
Sérstakir gestir á Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2017 verða heiðurshjónin Siggi Jóh. og Sæa sem hafa verið einstakir stuðningsmenn Ísfirðingafélagins í gegnum árin.
Forsala aðgöngumiða verður á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 14. janúar kl. 14:00 – 16:00.
Kæru Ísfirðingar, Vestfirðingar og aðrir velunnarar félagsins, skemmtum okkur og eigum saman góða kvöldstund. Tökum með okkur gesti, allir velkomnir.
Stjórn Ísfirðingafélagsins