Lög félagsins
LÖG ÍSFIRÐINGAFÉLAGSINS 2022
1. gr. Félagið heitir Ísfirðingafélagið.
2. gr. Tilgangur félagsins er:
a) Að viðhalda kynningu milli brottfluttra Ísfirðinga og efla tryggð þeirra við átthagana.
b) Að standa fyrir „Sólarkaffi Ísfirðinga” ár hvert og öðru samkomuhaldi.
c) Rekstur heimasíðu og netmiðla auk útgáfu félagsritsins „Vestanpóstur”.
d) Önnur skyld starfsemi.
3. gr. Félagsmenn geta öll orðið, sem fædd eru eða uppalin í Ísafjarðarbæ eða nágrenni hans eða hafa dvalist þar svo lengi að þeir teljast Ísfirðingar, svo og niðjar þeirra og makar.
4. gr. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Um árgjöld fer eftir ákvörðun aðalfundar hverju sinni. Hluta tekna félagsins skal árlega varið til að veita styrki til menningar- og listamála í Ísafjarðarbæ.
5. gr. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert og aukafundir þegar stjórnin ákveður eða 10% félagsmanna æskir þess. Fundir skulu boðaðir skriflega eða með auglýsingum á miðlum félagsins með minnst viku fyrirvara og teljast lögmætir ef þeir eru löglega boðaðir. Meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum allra mála. Til lagabreytinga þarf þó 2/3 hluta greiddra atkvæða enda sé þeirra getið í fundarboði.
6. gr. Stjórn félagsins skipa 4-7 aðilar, kosnir á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórn félagsins er heimilt að skipa starfsnefndir til að annast einstök mál ef henni þykir þurfa. Á aðalfundi skal flutt ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins fyrir liðið reikningsár til samþykktar. Færa skal helstu atriði skýrslunnar og ársreikningsins í fundagerðarbók félagsins.
7. gr. Ef félagið hættir störfum skal verja eignum þess til menningarstarfsemi í Ísafjarðarbæ. Eftir nánari ákvörðun síðasta fundar félagsins, sem boðaður skal í þeim tilgangi að ráðstafa eignum þess. Farist það fyrir og starfi félagið ekkert og haldi enga bókaða fundi eða samkomur í þrjú ár samfleytt, er skylda að afhenda eignir þess skógræktarfélagi Ísfirðinga eða sé það undir lok liðið öðru félagi í Ísafjarðarbæ með svipuð verkefni. Bækur félagsins skulu þá einnig afhentar Héraðsbókasafninu í Ísafjarðarbæ til varðveislu.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi félagsins þann 31. maí 2022 til endurskoðunar á lögum þess frá 25. mars 1995.
Stofnlög félagsins voru lögð fram á stofnfundi þess þann 22. apríl 1945.