Miði á Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2026
9.900 kr.
Ísfirðingafélagið heldur hið árlega Sólarkaffi laugardaginn 31. janúar 2026 í Gamla Bíó.
Dagskráin hefst kl. 20:00 en húsið opnar fyrir gesti Sólarkaffis kl. 19:00.
Miðaverð: 9900 kr.
Á lager
Ísfirðingafélagið heldur hið árlega Sólarkaffi laugardaginn 31. janúar 2026 í Gamla Bíó.
Dagskráin hefst kl. 20:00 en húsið opnar fyrir gesti Sólarkaffis kl. 19:00.
Skemmtiatriði og hefðbundnar veitingar að hætti Sólarkaffis.
Hinar mjög svo nauðsynlegu Sólarpönnukökur, og fleira, með kaffinu.
Veislustjóri kvöldsins mun halda utan um stemminguna og stýra Sólarkaffinu með gleðina að vopni.
Ræðumaður kvöldsins lætur gamminn geysa, tónlist mun hljóma, og fleira skemmtilegt í boði.
Hljómsveit kvöldisins verður hin sívinsæla: "The Bookstore Band" sem á miklum vinsældum
að fagna um þessar mundir með spilamennsku í Húsi Máls og Menningar á Laugavegi.
Að sjálfsögðu eru Ísfirðingar fyrirferðarmiklir í þessari frábæru stuðhljómsveit!
Miðasala á netinu á www.isfirdingar.is
Sólarkaffi heffst kl. 20:00 - Miðaverð kr. 9.900- (Sólarkaffi + pönnukökur, meðlæti, kaffi + ball)
Selt verður á 10 manna borð í sal og 6 manna borð á svölum. Einnig verða í boði safnborð fyrir staka miðahafa.
(munið að taka fram við miðakaupin á netinu með hvaða hóp þið viljið sitja til borðs) - Fyrstur kemur fyrstur fær!
Ballið hefst kl. 23:00 - Miðaverð á ball kr. 3.000- (miðar seldir við hurð)